Fara í aðalefni

Þjónustuskilmálar

Útgáfa 2026-11-01 · Í gildi frá 1. nóvember 2026

Þjónustan

Verkbókin heldur utan um verk, stimplun, tilboð og dagbók. Þjónustan er í prófun. Greiðslur eru ekki teknar sjálfvirkt og fyrirtækjaaðgangur er samþykktur handvirkt. Rekstrarupplýsingar og endanlegir viðskiptaskilmálar verða fullgerðir áður en greidd þjónusta hefst.

Aðgangur og ábyrgð notanda

Hver einstaklingur notar eigin aðgang. Fyrirtækiseigandi úthlutar réttindum og ber ábyrgð á að upplýsingum sé deilt með réttum aðilum. Ekki deila lykilorðum. Nýskráning er fyrir 18 ára og eldri. Óheimilt er að misnota kerfið, afla óheimils aðgangs eða skrá gögn sem þú hefur ekki heimild til að vinna.

Tilboð, efni og verð

Vinnutímar og efnismagn eru áætlanir, ekki trygging um verktíma eða endanlegan kostnað. Verð frá verslunum þarf að staðfesta hjá viðkomandi verslun. Verkfærakostnaður er hluti af einingarverði vinnu og efnisálag hluti af efnisverði þegar tilboðsgjafi velur það; það er ekki viðbótarrukkun frá Verkbókinni. Tilboðsgjafi ber ábyrgð á réttum upplýsingum, skattahlutföllum, samtölum og samningi við verkkaupa.

Reikningsgerð í bókhaldskerfi

Payday- og DK-tengingar eru í prófun. Aðeins eigendur fyrirtækja á viðeigandi leið geta flutt drög með eigin staðfestum bókhaldsaðgangi. Flutningur er ekki sending til verkkaupa, bókun eða kröfustofnun. Fyrirtæki staðfestir allar línur, VSK og fjárhæðir í bókhaldskerfinu áður en reikningur er gefinn út. DK notar VSK-stillingar vörunúmers. Við óstaðfestan flutning þarf að athuga bókhaldskerfið áður en reynt er aftur. Gjöld og aðgangskröfur bókhaldsþjónustu eru ekki innifalin í áskrift Verkbókarinnar.

Áskrift og gjöld

Verð og innifalin þjónusta eru sýnd á áskriftarsíðunni. Engin greiðsla eða sjálfvirk endurnýjun fer fram við að stofna aðgang eða velja leið. Áður en greiðsla er tekin þarf skriflega staðfestingu um leið, heildarverð, starfsmannafjölda og skatta. Ekki er bætt við ótilkynntu gjaldi fyrir verðleit eða önnur verk án samþykkis kaupanda.

Uppsögn og endurgreiðsla

Hægt er að senda uppsagnar- eða endurgreiðslubeiðni í gagnabeiðnaforminu. Uppsögn stöðvar framtíðarrukkun samkvæmt staðfestum samningi, ekki eyðingu gagna. Fyrir greidda áskrift er boðin 14 daga endurgreiðsla samkvæmt endurgreiðslustefnu. Ófrávíkjanleg lögbundin réttindi haldast.

Gögn, aðgengi og breytingar

Fyrirtæki heldur réttindum að eigin gögnum. Tímaskráningum er ekki sjálfkrafa eytt við uppsögn eða gagnabeiðni. Notandi skal sækja nauðsynleg yfirlit og tryggja að ósendar stimplanir hafi borist áður en tæki er hreinsað. Stefnt er að aðgengilegri þjónustu; bilun eða aðgengisvandi má tilkynna í samskiptaformi. Verulegar breytingar á gjöldum og skilmálum verða kynntar áður en þær taka gildi.

Senda gagnabeiðni, uppsögn eða endurgreiðslubeiðni